Contalgen Funeral gefur frá sér nýtt lag

Mikið er um að vera hjá skagfirsku hljómsveitinni Contalgen Funeral um þessar mundir en auk þess að vera iðin við tónleikahald vítt og breitt um landið var hljómsveitin að senda frá nýtt lag.

Nýja lagið ber nafnið „Not Dead Yet“ en lagið er undanfari fyrstu plötu bandsins sem er væntanleg í lok júlí og mun bera nafnið Pretty Red Dress.

Hljómsveitin er nýbúinn að spila á tónlistarhátíðinni Rauðasandur Festival sem fór fram við bæinn Melanes sem staðsettur er á Vestfjörðunum. Í lok mánaðarins treður bandið upp á Bræðslunni.

Hér er má heyra hið nýja lag, „Not Dead Yet“.

http://www.youtube.com/watch?v=49Ti_SOgTuM

Fleiri fréttir