Contalgen Funeral í 15. sæti

Um helgina fór lagið Not Dead Yet með Contalgen Funeral beint í 15. sæti Vinsældarlista Rásar 2. Lagið er á glænýjum disk bandsins sem kom út fyrir nokkrum vikum og nefnist Pretty Red Dress.

Hægt er að freista þess að koma laginu ofar með því að merkja við það hér.

Framundan hjá bandinu er að spila á Kántrýhátíð á Skagaströnd um næstu helgi og svo á tónlistahátíðinni Gærunni á Sauðárkróki helgina eftir það.

Hér fyrir neðan má hlusta á lagið Not Dead Yet þegar það var tekið í Stúdíó 12.

http://www.youtube.com/watch?v=cPJKSHTOPJA

 

Fleiri fréttir