Daglega förðunarbuddan!

Fröken Fabjúlöss er oft spurð að því hvað, að hennar áliti, sé algjör nauðsyn að hafa í hinni daglegu förðunarbuddu! Innihaldið fer náttúrulega algjörlega eftir skapgerð og glamúrþörf hverrar konu fyrir sig en Frk. Fab hefur ákveðið að deila með ykkur hvað hún álítur vera svona grunnvörur í sínu snyrtiveski.

1. Púður eða meik:
Þar sem Fröken Fabjúlöss er með ákveðið óþol þegar kemur að meiki, þá er NYX powder foundation það sem hún kýs að nota. Mjög gott púður sem hylur vel og endist nánast út í það óendanlega!

2. Maskari:
Frk. Fab á í mjög innilegu ástarsambandi við Hypnose Doll eyes maskarann frá Lancome og á erfitt með að snúa sér að öðrum möskurum. Þar sem þessi ágætisvara er í dýrari kantinum hefur þessi aðferð verið brúkuð miskunnarlaust oftar en einusinni og oftar en tvisvar! 

3. Eyeliner:
Svartur creme liner frá MAC er það sem á upp á pallborðið í eyelinerdeildinni hjá Frk. Fab. Þessi liner er náttúrulega bara argasta snilld með það að hann endist algjörlega út í það óendanlega! Frk Fab er búin að nota sinn eyeliner að staðaldri frá 2005 (þeas sama eyelinerinn, ekki þurft að fjárfesta í nýjum ennþá), ennþá er nokkuð eftir af honum og hann þrælvirkar eins og hann hafi verið keyptur í gær!

4. Sólarpúður:
Sólarpúðrið sem Frk Fab notar heitir MAC Mineralize Skinfinish dark. Þetta sólarpúður er pressað og bakað þannig að það endist mjög vel. Skyggingin verður falleg og glamúrgellan verður útitekin og krúttleg með nokkrum pensilstrokum.

5. Highlighter:
Highlighter gerir rosalega mikið fyrir förðun, nokkurskonar fótósjopp og gefur ákveðinn kontrast á móti sólarpúðrinu. Þetta er hásanserað ljóst púður sem er borið með púðurbursta ofan á kinnbeinin og undir augun. Uppáhalds highlighter Frk Fab heitir Belightful og fékkst hjá MAC, en af einhverjum algjörlega óútskýranlegum ástæðum ákváðu þeir að taka hann af sölu og syrgir Frk Fab þessa ákvörðun þeirra enn þann dag í dag!! Highlighterinn sem Frk. Fab notast við dagsdaglega heitir Champagne Diamond frá Bitch-slap cosmetics, og er ágætur en jafnast ekkert á við Belightful!

6. Vaseline:
Frk Fab er eins og er meira hlynnt því að nota vaseline eða litlausann/litlítinn gloss á varirnar svona dagsdaglega. Reyndar er hún að verða svolítið heit fyrir dökku varalitunum sem eru að koma sterkt inn í vetur, en eins og er notast hún við vaseline eða gloss.

7. Það sem er algjörlega ómissandi í snyrtitösku Frk Fab og hún notar dagsdaglega er NYX Jumbo Milk. Þetta er hvítur augnblýantur og eins og nafnið gefur til kynna er hann þykkur og stór. Það sem Frk Fab gerir er að hún byrjar á að smella honum með eyelinerbursta í þykka línu á augnlokin. Því næst eru litir dagsins valdir úr augnskuggasafninu. Þar sem blýanturinn er hvítur þá verða þeir litir sem valdir eru mjög skærir og fallegir, og er litasamsetning Frk Fab oft skrautleg! Þegar augnskugginn hefur verið borinn á (með nettum pensli) þá er eyelinerlínan sett yfir, mjórri en blýants/augnskuggalínan- þessi aðgerð tekur sirka 10 mínútur, og er útkoman skemmtileg eyelinerförðun! Einnig er þessi blýantur algjör snilld sem primer undir augnskugga í farðanir, Frk Fab mælir eindregið með þessum blýanti!!

Þetta er hið daglega förðunarkitt Fröken Fabjúlöss í hnotskurn!

Fleiri fréttir