Dalamaður ársins er Skagfirðingur
Freyja Ólafsdóttir rekstraraðili Leifsbúðar, kennari í Auðarskóla og athafnakona fékk flest atkvæði í kosningu á Dalamanni ársins 2012. Freyja er fædd og uppalin á Sauðárkróki en flutti til Búðardals árið 2007. Freyja var í hópi 22 annarra tilnefndra sem hún skaut ref fyrir rass og þeirra á meðal var þingmaðurinn Ásmundur Einar Daðason.
Á vefnum Búðardalur.is er viðtal við Freyju sem tekið var í Reykjavík en þar veitti hún viðtöku áletruðum verðlaunagrip sem á stendur „Dalamaður ársins 2012, Freyja Ólafsdóttir, Kosning á Búðardalur.is“.
Freyja er dóttir Kristínar Jóhannsdóttur frá Tyrfingsstöðum og Ólafs heitins Þorsteinssonar sem kenndur var við Vatn.
Sjá nánar HÉR