Dansmaraþonið fer af stað í dag
Hið árlega dansmaraþon 10. bekkinga Árskóla á Sauðárkróki hefst í dag kl. 10 en þá verður dansað daginn út og daginn inn til að safna fyrir Danmerkurferð næsta vor. Nemendurnir gengu í hús og fyrirtæki í vikunni til að safna áheitum.
Kl. 17:00-17:30 verður danssýning Árskólanemenda í íþróttahúsinu en þá munu allir nemendur skólans taka þátt, tjútta saman og sýna brot af því besta sem þeir hafa lært í dansi.
„Foreldrar, systkini, afar, ömmur og aðrir velunnarar skólans, fjölmennum og sjáum börnin okkar dansa,“ segir á heimasíðu Árskóla.