Dásamleg Dömubindi!
Fröken Fabjúlöss hefur alltaf gaman að því að grafa upp hæfileikaríkt fólk í Skagafirði og hampa þeim svolítið á veraldarvefnum. Í þetta skipti hnaut Frökenin um ótrúlega smart og skemmtilega hönnun frá lífskúnstnernum Ritu Didrikson- Dömubindi!!!
Dömubindin eru ótrúlega falleg og skemmtileg hálsmen búin til úr herrabindum. Hvert og eitt Dömubindi er handgert og inniheldur temmilegann skammt af nostri, alúð og umhyggju í bland við tískuvit og hugmyndaflug! Hægt er að hnýta bindin á marga mismunandi vegu, hnýta slaufu og hafa hana á öxlinni, gera klassískann bindishnút, hafa hnútinn/slaufuna að aftan eða bara algjörlega eins og hugmyndaflugið óskar í hvert skipti!
Fröken Fabjúlöss fékk að prufa nokkrar gerðir af þessum stórkostlegu hálsmenum og er gjörsamlega sjúk. Við hérna í tískuhorni Fabjúlössmans erum sammála um það að varla er hægt að gera upp á milli og þessvegna værum við bara til í að eiga öll hálsmenin!!! Áhugasamar hefðarmeyjar geta haft samband við Ritu Didriksen til að verða sér út um frekari upplýsingar um Dömubindin góðu.