Dauðir selir í fjörunni
Það er ýmislegt forvitnilegt sem rekur upp á fjörur landsins eftir hressilega norðanátt en ekki er algengt að margir selir liggi eftir slíkt veður. Það gerðist þó í fjörunni neðan Sauðárkróks.
Marinó Þórisson var á gangi með hundinn sinn í fjörunni í gær og veitti því athygli að besti vinurinn var að snudda í einhverju sem reyndist vera selshræ. Á stuttum kafla eða frá því að sandfjaran byrjar og að Ernunni liggja fimm selshræ sem skolað hafa á land. Hafði Marinó samband við lögregluna sem aftur lét Náttúrustofu vita en þar á bæ munu sérfræðingar skoða hræin og athuga hvernig í málum liggur.