David og Nikola áfram í herbúðum Tindastóls

Nikola og David. MYNDIR AF NETINU
Nikola og David. MYNDIR AF NETINU

Tveir af lykilmönnum knattspyrnuliðs Tindastóls hafa endurnýjað samninga sína við félagið og verða það að teljast góðar fréttir. Um er að ræða miðjumanninn öfluga, David Bercedo, og markmanninn Nikola Stoisavljevic.

„David og Nikola komu til okkar árið 2024 og hafa síðan þá sett svip sinn á félagið, bæði innan valla sem og utan. Við gleðjumst mikið að halda þessum mikilvægu leikmönnum og hlökkum til sumarsins!“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Tindastóls.

Fleiri fréttir