Haustfyrirlestur Heimilisiðnaðarsafnsins á laugardaginn
Ingibergur Guðmundsson á Skagaströnd, fyrrverandi menningarfulltrúi á Norðurlandi - vestra, mun halda fyrirlestur í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi sem hann nefnir: „Ófermd, illa uppalin, afstyrmi á vöxt, tekin á flakki“. Fyrirlesturinn fer fram laugardaginn 14. nóvember og hefst kl. 15:00.
Í þessum fyrirlestri mun Ingibergur draga fram stöðu lítilmagnans um miðja 19. öld og staðnæmast við barnsmóður listamannsins, Sölva Helgasonar.
Eftir fyrirlesturinn verður boðið upp á spjall við Ingiberg og í lokin verður kaffi á boðstólum í kaffirými safnsins. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
