Devlin Shea með listasýningu í Gúttó

„The Contours of a Migration“ er sýning á málverkum og teikningum eftir listakonuna Devlin Shea sem verður opnuð í Gúttó á Sauðárkróki, föstudaginn 22. mars nk., kl. 15:00-19:00. Myndlistasýningin er upphafið á samvinnu milli Nes listamiðstöðvar og Sólons myndlistarfélags á Sauðárkróki.

Í fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð kemur fram að í Gúttó verða haldnar sýningar listamanna frá Nes listamiðstöð og Devlin Shea verður fyrst til að ríða á vaðið. Sýningin er úrval mynda sem Devlin hefur unnið að í fimm mánaða dvöl sinni í Nes listamiðstöð. Þess má geta að Devlin hefur fengið viðurkenningar víða um heim og verk hennar hafa verið til sýnis í New York, Stokkhólmi og London.

„Í teikningum sínum og málverkum lýsir Devlin draumkenndu landslagi þar sem fólk á í innri baráttu en einnig yfirgefnum húsum. Myndirnar eru undir áhrifum frá íslensku landslagi. Aðalviðfangsefni hverrar myndar vísar til horfinnar sögu sem birtist aftur í landslaginu. Þetta getur verið huglægt; t.d. við aðskilnað fólks eða bókstaflegt; hvað er eftir á stað þegar fólk flytur burt,“ segir í tilkynningu.

Allir eru boðnir velkomnir, þiggja léttar veitingar og njóta sýningarinnar með listamanninum kl. 15:00-19:00 á föstudaginn. Sýningin verður einnig opin laugardag og sunnudag kl. 12:00-17:00.

Fleiri fréttir