Dögun heimsækir Dögun
Réttlætisrúta Dögunar hefur verið á ferð um Skagafjörð frá því í gær en byrjað var að heimsækja sundlauginni á Hofsósi og svo var rúllað heim að Hólum. Frambjóðendurnir Guðrún Dadda Ásmundardóttir, oddviti, og Sigurjón Þórðarson voru með í för og fóru í heimsóknir í fyrirtæki á svæðinu og ræddu við kjósendur.
Sigurjón Þórðarson, Guðjón Arnar Kristjánsson og Guðrún Dadda Ásmundardóttir.
Á heimasíðu Dögunar segir að í morgun hafi ferðin hafist í bakaríinu á Sauðárkróki en þaðan var farið í heimsókn í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, Heilbrigðisstofnunina á Sauðarkróki. Það sem þótti skemmtilegast var þó heimsóknin til nöfnunnar þ.e. Dögunar á Eyrinni en þar eru rækjur unnar.
Þröstur Friðfinnsson leiðir Guðrúnu Döddu í allan sannleika um rækjuvinnsluna.
Feykir leit á þær nöfnur í morgun en það voru þau Guðrún Dadda Ásmundardóttir sem leiðir lista Dögunar í Norðvesturkjördæmi, Kristján Arnar Guðjónsson og Sigurjón Þórðarson sem tóku létt spjall við starfsfólk Dögunar.
Og þá er að kíkja í vinnslusalinn og sjá hvernig þehtta fúnkerar allt saman.