Donni ráðinn þjálfari Tindastóls næstu tvö árin

Halldór Jón Sigurðsson (Donni) hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Tindastóls og mun stýra liði m.fl. karla þann tíma. Donni tók við liðinu um mitt sumar árið 2010 og kom liðinu upp í 1. deild.

Á heimasíðu Tindastóls segir að mikil ánægja hefur verið með Donna innan liðsins og stjórn knattspyrnudeildarinnar er ekki síður ánægð með störf hans á síðustu árum.

Síðastliðið sumar stýrði hann liðinu í þeirri deild þar sem liðin spilaði oft á tíðum gríðarlega skemmtilegan fótbolta og vakti athygli margra,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir