Dramatískar lokamínútur í sigurleik gegn ÍR
Tindastóll vann loks sigur í Iceland Express deildinni í kvöld þegar liðið heimsótti ÍR-inga. Lokamínútur leiksins voru heldur betur dramatískar því þegar átta mínútur voru eftir höfðu Stólarnir 13 stiga forskot en ÍR snéri leiknum sér í vil og þegar mínúta var eftir voru heimamenn 4 stigum yfir. Stólarnir gerðu sér hinsvegar lítið fyrir og skoruðu 8 stig á síðustu mínútunni á meðan heimamenn gerðu ekkert og lokatölur 92-96 fyrir Tindastól.
Tindastólsmenn voru sjóðheitir á upphafsmínútum leiksins og eftir 3 og hálfa mínútu voru þeir komnir með 10 stiga forystu, 5-15. Nemanja Sovic kom heimamönnum inn í leikinn og þegar mínúta var eftir af leikhlutanum komust ÍR-ingar yfir og heimamenn voru stigi yfir 29-28 þegar annar leikhluti hófst. Nú hægðist heldur á leiknum og minna um körfur en þegar rúmar 3 mínútur voru eftir náðu ÍR-ingar 5 stiga forskoti, 40-35. Þá kom fínn kafli hjá Stólunum sem gerðu næstu 6 stig og komust yfir og Igor Tratnik lauk fyrri hálfleik með lay-öppi og staðan í hálfleik 42-46 fyrir gestina.
Tindastóll hóf síðari hálfleik vel og komst í 44-52 en lengstum var munurinn á liðunum 4-8 stig fram eftir þriðja leikhluta. ÍR minnkaði muninn í eitt stig en Stólarnir sigu aftur framúr og höfðu 7 stiga forystu þegar fjórði leikhluti hófst, 65-72. Svabbi kom Stólunum yfir 10 stiga múrinn með 3ja stiga körfu, náði 11 stiga forystu, 66-77, og Tratnik bætti um betur og staðan 66-79 þegar átta mínútur lifðu leiks. Staða Stólanna sannarlega góð. Næstu 5 mínútur voru síðan hræðilegar hjá okkar mönnum sem gerðu 6 stig á sama tíma og ÍR gerði 22 og staðan orðin 88-83 fyrir ÍR og rúmar 3 mínútur eftir af leiknum. Hreinsi Birgis setti niður þrist en Eiríkur Önundar svaraði með næstu 4 stigum, 92-86, hrikaleg sveifla í leiknum en nú varð önnur sveifla því ÍR gerði ekki eitt einasta stig síðustu 105 sekúndur leiksins.
Miller lagaði stöðuna þegar hann setti niður körfu þegar rúm mínúta var eftir og Þröstur Leó minnkaði muninn í 2 stig þegar 45 sekúndur voru eftir. Rikki náði frákasti og ÍR-ingar brutu á Miller þegar 15 sekúndur voru eftir. Hann setti bæði vítaskotin niður af öryggi og jafnaði. ÍR tók leikhlé en leikstjórnandi heimamanna steig inn á sinn vallarhelming þegar þeir hófu leik að nýju og boltinn dæmdur af ÍR. Miller brunaði upp og átti skot sem geigaði en hann stal boltanum strax í kjölfarið og heimamenn brutu af sér og Miller því aftur á vítalínuna og aftur skilaði hann skotunum niður. ÍR-ingar tóku sitt síðasta leikhlé, skyndilega orðnir tveimur stigum undir og 3,5 sekúnda eftir, nógur tími til að koma skoti á körfu Tindastóls. En aftur gerðu heimamenn sig seka um ótrúleg mistök því Eiríkur steig út fyrir völlinn með boltann og í framhaldinu fékk Sovic dæmda á sig tæknivillu og Miller rölti enn eina ferðina á vítalínuna og setti niður tvö síðustu skot leiksins. Sætur útisigur staðreynd, lokatölur 92-96.
Fyrir leikinn höfðu Stólarnir tapað þremur síðustu leikjum sínum í deildinni og sátu í 10. sæti. Það var því mikilvægt að ná í 2 stig og koma sér betur fyrir í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Það hafðist. Maurice Miller var með fyrirtaks taugar á lokamínútunum í kvöld en fram að því höfðu honum verið nokkuð mislagðar hendur í sóknarleiknum. Hann tók þó 8 fráköst og átti 7 stoðsendingar. Allen var með fína nýtingu innan teigs en Stólarnir skutu að þessu sinni lítið utan 3ja stiga línu, settu niður 4 í 15 tilraunum. Tratnik átti skínandi leik, gerði 17 stig og hirti 15 fráköst.
Næsti leikur Tindastóls er í Laugardalshöllinni næstkomandi laugardag þar sem Stólarnir mæta Keflvíkingum í úrslitum Powerade bikarsins. Áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Miller 22, Allen 18, Tratnik 17, Svabbi 11, Helgi Rafn 11, Þröstur Leó 6, Rikki 4, Helgi Freyr 4 og Hreinsi 3.