Drangey sat eftir með sárt ennið

Lið Siglingaklúbbsins Drangeyjar, sem tók þátt í B-riðli 3. deildar í sumar, spilaði aukaleik um sæti í endurbættri 3. deild sl. laugardag. Strákarnir léku við lið Augnabliks á Skallagrímsvelli í Borgarnesi og máttu þola tap eftir framlengingu og leika því í 4. deild að ári ef Drangeyjar-skútan, sem var að mestu mönnuð B-liðs mönnum frá Tindastóli, verður aftur sett á flot.

Fram kemur í frétt á Fótbolti.net að leikur Drangeyjar og Augnabliks hafi verið markalaus lengi en það var Bjarki Már Árnason sem kom Drangeyingum yfir. Skömmu síðar var Augnabliksmanninum Hjörvari Hermannssyni vikið af velli en einum færri jöfnuðu Kópavogskapparnir metin og tryggðu sér framlengingu. Í framlengingunni skoraði Augnablik tvö mörk; fyrst Jóhann Hreiðarsson og síðan gerði Höskuldur Gunnlaugsson annað mark sitt í leiknum. Lokatölur 3-1.

Þess má geta að lið Augnabliks er B-lið Breiðabliks og því ekki við neina aukvisa að eiga.

Fleiri fréttir