Drangey spila úrslitaleik um sæti í nýrri 3. deild
Drangeyingar fengu lið Afríku í heimsókn á Sauðárkróksvöll á laugardaginn en fyrir leikinn var ljóst að Drangey myndi spila úrslitaleik um laust sæti í nýrri 3. deild sem verður spiluð næsta sumar. Ekki reyndist Afríka mikil, leikmenn Drangeyjar komust í 10-0 á 87. mínútu og Afríka aldrei líkleg til að jafna eftir það.
Guðni Þór fyrirliði gerði fyrsta markið á 17. mínútu og Bjarki Már bætti einu við áður en Nuno Miguel Jardim Lopes fékk að líta rauða spjaldið. Guðni og Bjarki skoruðu síðan aftur og Ingvi Rafn kom heimamönnum í 5-0 á hinni skelfilegu markamínútu og staðan 5-0 í hálfleik.
Hilmar Kára og Ingvi Rafn gerðu næstu tvö mörk áður en markmanninum Óla Grétari var hleypt fram til að taka víti sem hann gerði sér lítið fyrir og skoraði úr. Það voru síðan Hólmar Skúla og Ísak Sigurjóns sem gerðu mörk númer 9 og 10 og gulltryggðu öruggan sigur.
Um næstu helgi ræðst hvort Drangey spilar í nýrri 3. deild en nk. laugardag mætir Drangey öflugu liði Augnabliks úr Kópavogi en leikið verður á Skallagrímsvelli í Borgarnesi laugardaginn 1. september kl. 16:00. Tveimur tímum fyrr spilar Tindastóll gegn Leikni á Sauðárkróksvelli þannig að tímasetningin mætti vera betri fyrir stuðningsmenn Tindastóls og Drangeyjar.
Fyrirkomulag nýrrar 3. deildar verður þannig að 10 lið spila í deildinni og deildina skipa þau tvö lið sem falla úr 2. deild og þau sex lið (af átta) sem komast í úrslitakeppni 3. deildar nú í sumar en komast ekki í úrslitaleikinn (liðin sem komast í úrslitaleikinn spila að sjálfsögðu í 2. deild næsta sumar). Að lokum komast þau tvö lið sem vinna sér inn þátttökurétt í sérstöku umspili milli þeirra liða sem enduðu í þriðja sæti í riðlum 3. deildar í sumar (en Drangey er eitt af þeim liðum). Fjórða deild verður með svipuðu sniði og 3. deildin í sumar.