Draumaraddir Norðursins í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag

Stúlknakór Söngskóla Alexöndru, Draumaraddir Norðursins, verða með tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 16:00 en þar verður geisladiskurinn kynntur sem kórinn er að gefa út. Skagfirðingar og aðrir söngfuglar eru hvattir til að mæta á svæðið og sjá og heyra í frábærum kór.

Diskurinn inniheldur mörg þekkt alþjóðleg lög, m.a. falleg Disney lög en þau eru öll sungin á íslensku. Kynnir Guðrún Ásmundsdóttir leikkona.

Fleiri fréttir