Drengjaflokkurinn mætir Grindvíkingum í 8-liða úrslitunum í dag

Strákarnir í drengjaflokki Tindastóls hafa tryggt sér annað sætið í sínum riðli Íslandsmótsins í körfubolta og eru því komnir í 8-liða úrslitin. Þau hefjast strax í dag þriðjudag, þegar Grindvíkingar koma í heimsókn.

Leikurinn verður í Síkinu kl. 19.15 og og segir á heimasíðu Tindastóls að um mjög áhugaverðan leik verði að ræða, þar sem Grindvíkingar eru með hörkulið og lentu í 3. sæti í hinum riðlinum.

Liðið sem sigrar annað kvöld, ferð í undanúrslit, en þau og úrslitaleikurinn sjálfur, verður spilaður í Njarðvík um næstu helgi, á fyrri úrslitahelgi yngri flokkanna.

Stuðningsmenn eru hvattir til að mæta í Síkið og styðja strákana til sigurs. Frítt er inn með því skilyrði að fólk láti vel í sér heyra.

Fleiri fréttir