Drullupollar taka á móti nemendum Tónlistarskólans

Það má fullyrða að haustið sé tími drullupollanna og planið við húsnæði Tónlistarskóla Skagafjarðar, sem og höfuðstöðvar Feykis og Efnalaugarinnar, er gósenland áhugafólks um drullupolla um þessar mundir. Reyndar hefur pollunum farið fækkandi eftir því sem liðið hefur á vikuna en það er nú bara vegna þess að höfin hafa verið að tengjast sökum vaxandi vatnsmagns.

En svona án gríns þá er planið illfært, holurnar orðnar það djúpar að ökumönnum og farþegum þeirra liggur við rothöggum þegar bílarnir kastast til og frá. Svo er blessuðum börnunum hleypt út úr bílunum á planinu og þá er nú betra að mæta í stígvélum í skólann svo litlir fætur verði ekki orðnir rennblautir þegar búið er að tipla þessa 20-40 metra vegalengd inn í hús.

Er ekki kominn tími til að taka planið aðeins í gegn – það væri í það minnsta pínu rosalega gott!?

Fleiri fréttir