Dúndurfréttir á Mælifelli

Hljómsveitin Dúndurfréttir verður með tónleika á Mælifelli fimmtudagskvöldið 14. febrúar. Dúndurfréttir spila tónlist gömlu meistaranna og hefur sérhæft sig í flutningi laga hljómsveita á borð við Led Zeppelin, Pink Floyd, Deep Purple og Uriah Heep ásamt fleiri.

Í fréttatilkynningu frá Mælifelli kemur fram að sveitin inniheldur mikla reynslubolta í tónlist; Matthías Matthíasson (Vinir Sjonna,Papar) syngur og spilar á rafgítar, Pétur Örn Guðmundsson (Buff, Súperstar) syngur og spilar á hljómborð, Ólafur Hólm (Nýdönsk) trommar af miklum krafti, Ingimundur Óskarsson (Reggae on ice, Yrja) sér um bassaleik og Einar Þór Jóhannsson (Buff, Meik) sér um rafgítarleik og söng.

„Lagavalið er bland af því besta frá tímum klassíska rokksins og verður enginn svikinn af þeirri miklu nostalgíu stemmningu sem þeir félagar bjóða uppá,“ segir loks í fréttatilkynningu.

Fleiri fréttir