Dúndurfréttir á Mælifelli í kvöld
Dúndurfréttir verður með tónleika á Mælifelli í kvöld, 14. febrúar kl. 21:30, húsið opnar kl. 21. „Lagavalið er bland af því besta frá tímum klassíska rokksins og verður enginn svikinn af þeirri miklu nostalgíu stemmningu sem þeir félagar bjóða uppá,“ segir í fréttatilkynningu frá Mælifelli.
Í tilkynningu kemur fram að Dúndurfréttir spila tónlist gömlu meistaranna og hefur sérhæft sig í flutningi laga hljómsveita á borð við Led Zeppelin, Pink Floyd, Deep Purple og Uriah Heep ásamt fleiri.
Sveitin inniheldur mikla reynslubolta í tónlist; Matthías Matthíasson (Vinir Sjonna,Papar) syngur og spilar á rafgítar, Pétur Örn Guðmundsson (Buff, Súperstar) syngur og spilar á hljómborð, Ólafur Hólm (Nýdönsk) trommar af miklum krafti, Ingimundur Óskarsson (Reggae on ice, Yrja) sér um bassaleik og Einar Þór Jóhannsson (Buff, Meik) sér um rafgítarleik og söng.