Edda Björgvins á konukvöldi körfuboltans
Næstkomandi laugardagskvöld ætla svellkaldar konur í Skagafirði að skemmta sér á Mælifelli en þá verður haldið konukvöld til styrktar körfuknattleiksdeild Tindastóls. Húsið opnar klukkan 20:30 og dagskrá hefst klukkan 21:00 með glæsilegri dagskrá. Meðal þeirra sem stíga á stokk er leikkonan Edda Björgvins en hún hleypur í skarðið fyrir Helgu Braga sem áður var auglýst með uppistand.
Enginn verður svikinn af Eddu því eins og allir vita er hún með mestu reynsluboltum landsins í gríngeiranum. Kiddi K og félagar munu svo stjórna stuðinu um kvöldið sem stendur langt fram á nótt.
-Þar sem Helga Braga kemst ekki þá fengum við enga aðra en Eddu Björgvins í staðin. Þetta verður frábært kvöld og mælum við með að allar konur í Skagafirðinum og nágrenni láti sjá sig, segir Vala Hrönn einn skipuleggjenda á Facebooksíðu sinni.