Edvard, Bjarki og Kristín best

Lokahóf knattspyrnudeildar Tindastóls og Drangeyjar fór fram í Miðgarði sl. laugardag en þann daginn lauk keppnistímabili meistaraflokks Tindastóls. Eins og við mátti búast var mikið fjör og stemning fram á nótt eftir að búið var að seðja mesta hungrið með veislumat og skemmtiatriðum sem slógu rækilega í gegn.

Viðurkenningar voru veittar til þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr á einhverju sviði og voru eftirfarandi kallaðir til:

Drangey ( varalið Tindastóls ) m.fl.karla:

  • Besti leikmaðurinn     Bjarki Már Árnason
  • Efnilegasti leikmaðurinn     Konráð Freyr Sigurðsson
  • Mestu framfarirnar     Ingvi Ingvarsson
  • Besta ástundunin     Óskar Smári Haraldsson
  • Markakóngur     Hilmar Kárason

 

Tindastóll m.fl.kvenna:

  • Besti leikmaðurinn     Kristín Halla Eiríksdóttir
  • Efnilegasti leikmaðurinn     Hugrún Pálsdóttir
  • Mestu framfarirnar     Kristín Halla Eiríksdóttir
  • Besta ástundunin     Brynhildur Ólafsdóttir
  • Markakóngur     Rakel Hinriksdóttir

 

Tindastóll m.fl.karla: 

  • Besti leikmaðurinn     Edvard Börkur Óttharsson
  • Efnilegasti leikmaðurinn     Loftur Páll Eiríksson
  • Mestu framfarirnar     Benjamín Guðlaugarson
  • Besta ástundunin     Björn Anton Guðmundsson
  • Markakóngur     Ben Everson

Fleiri fréttir