„Ég hef ekki tölu yfir það hversu margar peysur ég hef prjónað“
Ég heiti Sandra Halldórsdóttir og er fædd árið 1986, uppalin og búsett á Sauðárkróki ásamt fjölskyldu minni. Ég á fjögur börn og eitt barnabarn sem fæddist fyrr á árinu. Ég fluttist suður um tíma til að stunda nám við Háskóla Íslands þar sem ég lærði grunnskólakennarann og tók grunnnám á textílkjörsviði, þá einstæð með tvö börn. Ég ákvað að ljúka ekki náminu fyrr en nokkrum árum seinna þegar ég var flutt aftur á Sauðárkrók og átti von á þriðja barninu. Nú starfa ég sem umsjónarkennari á miðstigi í Árskóla.
Hannyrðir eru mitt aðal áhugamál og ég prjóna mikið því það veitir mér slökun og ró. Ég fæ hugmyndir úr öllum áttum og er oftast með eitthvað á prjónunum. Ég hef prjónað lopapeysur fyrir Handprjónasambandið í nokkur ár en annars prjóna ég aðallega á börnin mín og barnabarnið en einstaka sinnum fyrir vini og vandamenn. Ég fæ innblástur úr öllum áttum og þá helst eitthvað sem er vinsælt meðal barnanna hverju sinni.
Mig minnir að ég hafi byrjað að prjóna árið 2009, þá voru eldri stelpurnar mínar litlar og ég ákvað að sem var á ferðalagi. Ég hringdi nokkur símtölin til að fá aðstoð við að setja ermarnar á en það vafðist eitthvað fyrir mér. Í dag hef ég ekki tölu yfir það hversu margar peysur ég hef prjónað síðan.
Ég prjónaði skírnarkjól þegar ég var ólétt af syni mínum og var hann skírður í kjólnum. Við ætluðum svo að skíra stelpuna í kjólnum en svo er hún enn óskírð. Ég prjónaði heimferðarsett á yngri börnin mín tvö og barnabarn en ég hef gert þau nokkur þ.e.a.s. heimferðarsett og er mjög skemmtilegt að prjóna þau. Ég á mjög erfitt með að velja eitthvað eitt handverk sem ég er ánægðust með þar sem ég er ánægð með flest allt sem ég geri upp úr sjálfri mér.
Ég er ekki með neitt sérstakt á prjónunum eins og er, var að fitja upp á hringprjón og nýta garn sem ég átti bara til að hafa eitthvað á prjónunum. En ég var að ljúka við peysu á yngstu dóttur mína og eyrnaband í stíl.
Áður birst í tbl. 39 Feykis 2026.
