Eggjar Steingrím til góðra verka í sumar

FISK Seafood hefur uppfært heimasíðu sína í nýtt viðmót en á henni eru allar upplýsingar um fyrirtækið, sögu þess og fréttir. Nýjasta færsla síðunnar er ræða Jóns Eðvalds Friðrikssonar framkvæmdastjóra FISK sem hann hélt á opnum degi í Verinu þann 16. maí sl. en þar eggjar hann Steingrím J. sjávarútvegsráðherra til að nýta sumarið til góðra verka og fresta afgreiðslu sjávarútvegsfrumvarpanna sem nú liggja fyrir alþingismönnum.

Í ræðu sinni fer Jón yfir sögu Versins allt frá því er hann og Skúli Skúlason, þá skólastjóri Bændaskólans á Hólum, sátu saman fyrir 10 árum síðan og ræddu um hvað helst mætti gera til þess að treysta byggð í Skagafirði til framtíðar.

„Við vorum sammála um að mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni væri að efla skólastarf og ýmsar rannsóknir m.a. tengdar fiskeldi. Hólaskóli hafði náð langt í rannsóknum og kynbótum á bleikju og því rökrétt að halda áfram á sömu braut, en þar sem Hólar hafa ekki aðgang að sjó, þyrfti slík aðstaða fyrir fisk sem lifði í sjó að byggjast upp á öðrum stað“, segir Jón m.a. í ræðu sinni.

Einnig talar hann um hagstæðar aðstæður í sjávarútveginum sem hafa hjálpað til að halda þokkalegu atvinnustigi víða úti á landi, þrátt fyrir niðurskurð ríkisins á hinum ýmsu sviðum. „Tekjustreymi skatta í þjóðfélaginu er rangt í dag, þar sem einungis önnur hver skattkróna af landsbyggðinni skilar sér aftur út á land, en hin verður eftir á höfðuborgarsvæðinu.  Verkefni stjórnmálamanna eru því að minnka þennan mun eða jafna“.

Ræðuna má sjá í heild á fisk.is

Fleiri fréttir