Eitthvað fyrir strákana!

Þó svo að Fröken Fabjúlöss einblíni nú yfirleitt frekar á snúllerí og skemmtilegheit fyrir kvenþjóðina þá hrasar hún nú stundum um dót og dúllerí fyrir karlpeninginn og í þetta sinn var það bara einum of flott til að gefa því ekki heiðursess hérna í hugmyndahorni Fabjúlössmans!

Frk. Fab lendir nefnilega oftar en ekki í því að korter fyrir afmæli eða jól er hún komin í panikk með það hvað á að gefa hinum heittelskaða og fellur oft í hina yfirfullu gryfju að kaupa bara rakspíra, úr eða bindi af því það er auðvelt. En internetið er ótæmandi uppspretta gjafahugmynda handa garminum og snilligáfan sem á heiðursessinn þennann daginn eru mótorhjólagallar!

Þeir eru fokdýrir og kannski ekki á allra færi að fjárfesta í gripnum en á móti kemur að mótorhjólagallar eru alltaf fokdýrir og hugmyndin er góð. Svo eru þessir gallar svo ótrúlega töff að Frk. Fab bara gat ekki haft þessa snilld út af fyrir sig! Sérstaða sú sem þessir mótorhjólagallar hafa er að þeir eru nákvæm eftirlíking af ofurhetjubúningum: Batman, Tron Legacy og Star Wars!

Hversu óhugnalega flott væri að mæta mótorhjólatöffara klæddum eins og Batman? Og hversu óhugnalega skemmtilegt væri það ef það væri maðurinn þinn??

Heimasíðuna má finna hér: http://udreplicas.com/index.php?option=com_content&view=article&id=11

Fleiri fréttir