EKKI MEIR

Á morgun fimmtudaginn 4. apríl kl. 17.00 - 18.30 verður haldið í Húsi frítímans á Sauðárkróki fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála. Það er Æskulýðsvettvangurinn,  samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, að standa fyrir fundinum.

Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, kemur til með að flytja fyrirlestur byggðan á nýútkominni bók sinni, EKKI MEIR sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn.

Tilgangurinn með þessu fræðsluerindi er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu fólks fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun.

Á erindinu verður Aðgerðaráætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis plakati.

Allir eru velkomnir og léttar kaffiveitingar verða í boði.

Fleiri fréttir