Ekki svona þessi týpísku tjöld....
Fröken Fabjúlöss er alltaf til í að vera smá öðruvísi í lífinu, og finnst allt svona sem hressir og kætir litla hjartað svo skemmtilegt :) Nú er útilegutíminn í hámarki og öll tjaldsvæði landsins uppfull af hjólhýsum, húsbílum og tjöldum... Ekkert sem hægt er að gera til að vera svolítið öðruvísi og fabjúlöss.... Eða hvað????
Fröken Fabjúlöss datt inn á vefsíðu um daginn sem heitir Field Candy, en hana rekur fyrirtæki sem framleiðir tjöld, ekki kúlutjöld heldur þessi klassísku upp á gamla lagið eins og flestir fæddir fyrir tíma innrásar kúlutjaldanna muna eftir. En það sem er svo ofsalega lekker og skemmtilegt við þessi tjöld eru prentanirnar á þau... Hvað er betra en að sitja í góðra vina hópi í útilegu, fá sér vel í aðra tánöglina og skríða svo inn í upptjaldaða vegabréfið sitt?? Eða koma á tjaldsvæðið eftir langa göngu og fá sér smá lúr í músétna ostinum sínum?
Við hérna í tjaldbúðum (pun intended, svo engilsaxneskan sé brúkuð) Fröken Fabjúlöss höfum samt ákveðið að láta myndirnar tala, vegna þess að þetta er svo krúttlegt og kúl :)