Eldur blossaði upp í etanóltækjum samlagsins - „Sprengihætta á svæðinu óveruleg,“ segir slökkviliðsstjóri

Á myndinni sjást logarnir teygja sig upp eimingarturninn við samlagið á Sauðárkróki. Skjáskot af myndbandi sem gengið hefur á samfélagsmiðlum.
Á myndinni sjást logarnir teygja sig upp eimingarturninn við samlagið á Sauðárkróki. Skjáskot af myndbandi sem gengið hefur á samfélagsmiðlum.

Eldur kom upp í eimingarturni mjólkursamlagsins á Sauðárkróki sl. laugardag þegar verið var að keyra prufueimingu niður. Magnús F. Jónsson, forstöðumaður samlagsins, segist lítið geta sagt til um atvikið annað en það að svo virðist sem eldurinn hafi kviknaði út frá rafmagni.

Starfsmenn höfðu snör handtök og náðu að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang og segir Magnús ómögulegt að meta að svo stöddu hve mikið tjón hafi orðið. Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Skagafjarðar, staðfestir að upptök eldsins megi rekja til rafmagns. Hann segir eldinn ekki tengjast etanólinu sjálfu.

Hávær umræða hefur verið í samfélaginu um að mikil sprengihætta sé af væntanlegri etanólframleiðslu en Svavar segir hana sprottna af misskilningi. „Þetta er algengur misskilningur. Það er búið að brunameta og allt tekið út af óháðum aðilum. Sprengihætta á svæðinu er óveruleg. Umræðan var að mörg hundruð metrar væru undir og jafnvel heilbrigðisstofnunin í hættu en svo er ekki. Ég var á bakinu á þeim við hönnunina og eflaust hundleiðinlegur en starfsleyfi hefði aldrei fengist ef svo væri,“ segir Svavar og fullyrðir að sprengihætta þarna væri minni en á bensínstöðvum. „Búið er að reikna út að ef óhapp verður og hugsanleg sprenging, hefði það kannski áhrif nokkra metra frá tankinum, sem er 33 þúsund lítra niðurgrafinn tankur og í steyptri gryfju. Um turninn sjálfan loftar vel og því safnast ekki fyrir gufur og sprengihætta í lágmarki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir