Elín Gróa nýr formaður

Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar var haldinn 19. júní sl. Viggó Jónsson sem verið hefur formaður sl. 7 ár gaf ekki kost á sér áfram og nýr formaður var kjörin Elín Gróa Karlsdóttir.

Aðrir í stjórn eru: Hafdís Steinarsdóttir, Gunnar Valgarðsson, Ólafur Sigmarsson og Stefán Vagn Stefánsson. Í lok fundarins voru Viggó Jónssyni fráfarandi formanni færðar bestu þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins í formannstíð sinni.

Fleiri fréttir