Elinborg færði Bókasafni Húnaþings vestra nótnasafn sitt að gjöf

Elinborg ásamt fyrrverandi nemendum sínum og Ólafi Rúnarssyni tónlitarkennara. Frá vinstri: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framan við hana Margrét Ragna Jónsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Elinborg fyrir miðri mynd, Elín Jóna Rósinberg og Ólafur. MYND AF FACEBOOK-SÍÐU SAFNSINS
Elinborg ásamt fyrrverandi nemendum sínum og Ólafi Rúnarssyni tónlitarkennara. Frá vinstri: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framan við hana Margrét Ragna Jónsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Elinborg fyrir miðri mynd, Elín Jóna Rósinberg og Ólafur. MYND AF FACEBOOK-SÍÐU SAFNSINS

Sagt er frá því á Facebook-síðu Bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra að bókasafninu barst í gær góð gjöf þegar Elinborg Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi skólastjóri tónlistarskóla Húnaþings vestra, færði safninu nótnasafn sitt sem spannar 43 ára starfsferil en síðustu 35 árin var hún leiðandi í tónlistarlífi Húnaþings vestra.

Í fréttinni segir: „Elinborg fylgdi gjöfinni úr hlaði með fáeinum orðum þar sem hún gat um að á löngum tíma hefði safnast að fjölbreyttar nótur þar sem kenna þurfti á mörg hljóðfæri auk margvíslegra tónlistarverkefna. Það væri einnig hennar vilji að nóturnar yrðu til útlána frá safninu ef einhver vildi nýta sér það.“

Það var Þorleifur Karl Eggertsson oddviti sem tók fyrir hönd sveitarstjórnar á móti þessari höfðinglegu gjöf og þakkaði Elinborgu fyrir einstaklega mikið og gott tónlistarstarf og tónlistaruppeldi sem sannarlega væri tekið eftir á landsvísu.

Auk sveitarstjórnar og sveitarstjóra voru fulltrúar fræðslunefndar, tónlistarskólans og nokkrir fyrrverandi nemendur viðstaddir afhendingu gjafarinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir