Eliza hittnari með haglabyssuna - Forsetahjónin í menningarreisu í Skagafjörð

Forsetahjónin, Eliza Jean Reid og Guðni Th. Jóhannesson, vörðu hvítasunnuhelginni í Skagafirði þar sem þau voru í óopinberri heimsókn með börnum sínum. Gistu þau á Syðra-Skörðugili, þar sem sauðburður stendur sem hæst, og nutu afþreyingar, menningar og matar í héraðinu.
Að kvöldi hvítasunnudags héldu þau Eliza og Guðni í leikhús að sjá Á frívaktinni, eftir Pétur Guðjónsson, sem Leikfélag Sauðárkróks sýnir um þessar mundir.
Boginn spenntur á athafnasvæði Ósmanns.
Myndir: FB-síða Forseta Íslands
„Mér fannst alveg sérlega gaman á þessu leikriti, söngur alveg frábær og leikur líka og gleði í hverju andliti. Við erum aðkomufólk hérna en ég heyrði á máli sessunauta minna og í hléinu líka hvað það er extra gaman að þekkja nánast alla sem eru á sviði. Ég skal nú ekki segja hvort einhverjir hafi sagt að einhverjir ættu erfiðara en aðrir að leika sínar persónur en þetta var allt saman rosalega flott,“ sagði Guðni eftir sýningu en þau hjón óskuðu eftir því að fá að eiga stund með leikurum og ræddu um landsins agn og nauðsynjar.
„Mér fannst þetta líka mjög skemmtilegt og hressandi þó ég þekki ekki öll lögin eins og Guðni. En ég var mikið í leiklist þegar ég var yngri svo þegar ég horfði á þetta hugsaði ég um þær góðu minningar og stemningu sem skapast í svona hóp. Þetta var mjög skemmtilegt,“ samsinnti Eliza brosandi.
Farið var í útreiðartúr með heimafólki
að Syðra-Skörðugili
Hvaða ferðalag er á ykkur?
„Við komum fyrst og fremst til að þiggja gott boð um að koma á sýninguna, á 80 ára afmæli Leikfélagsins, vildum heiðra minningu þess á þennan hátt. Svo höfum við líka verið hér á ferðalagi með hluta barnanna okkar, fórum meðal annars á athafnasvæði skotfélagsins Ósmanns þar sem félagar tóku alveg einstaklega vel á móti okkur. Okkur þótti svo vænt um hvað þeir voru duglegir að sinna krökkunum okkar,“ segir Guðni og Eliza skýtur inn í hvað þeim var sýnd mikil þolinmæði. „Svo fengum við góða kennslu og leiðsögn um ábyrgð og annað varðandi skotvopn.“
Forsetafrúin á litföróttum gæðingi.
Spurður um árangur segir Guðni ekki allt hafa gengið upp eins og til var ætlast. „Ég er ennþá að jafna mig á því að það var ekki ég sem náði að skjóta leirdúfu heldur Eliza. „Já, getur það verið fyrirsögnin?“ spyr Eliza hlæjandi og auðvitað verður Feykir við því.
Fjölskyldan gisti hjá Elvari og Fjólu á Syðra-Skörðugili og þar sem farið var á hestabak og kíkt í fjárhúsin. „Þar er sauðburður og krakkarnir fá þá aðeins að fylgjast með því svo við förum heim með góðar minningar í farteskinu,“ sagði Guðni en þau Eliza og börnin héldu heim á leið seinnipartinn á mánudag.