Endurheimt Brimnesskóga fær styrk

Landsbankinn veitti á dögunum félagi um endurheimt Brimnesskóga 250.000 króna fjárhæð til verkefnisins. Að sögn Steins Kárasonar sem veitti styrknum móttöku fyrir hönd Brimnesskóga, félags skiptir styrkurinn afar miklu máli um framgangs verkefnisins.

„Við erum afar þakklátir og reyndar í skýjunum yfir því að Landsbankinn hafi lagt okkur lið við endurheimt Brimnesskóga,“ segir Steinn.

Samfélagssjóður Landsbankans veitir fimm tegundir styrkja á hverju ári: Afreksstyrki, námsstyrki, nýsköpunarstyrki, samfélagsstyrki, og umhverfisstyrki.

Fleiri fréttir