Engar bollur á mánudaginn

Matreiðslukappinn Ólafur Jónsson eða Óli á Hellulandi hefur orð á sér fyrir að vera sérlega duglegur og ósérhlífinn og stundum á undan sinni ‚framtíð‘ eins og kallinn sagði. Það sannaðist í dag þegar hann auglýsti í Sjónhorninu matseðil næstu viku hjá ‚Gott í gogginn‘.

Þar gerir hann ráð fyrir bolludegi næsta mánudag, sprengidegi á þriðjudag o.s.fv.
-Þau leiðu mistök urðu hjá mér að áætla bolludag og sprengidag í næstu viku. Hið rétta er auðvitað að það er ekki fyrr en 20 feb. sem bolludagurinn er, segir Óli -Þetta er bara röng hugsun hjá mér og verður ekki breytt í Sjónhorninu héðan af.

Hér fyrir neðan er réttur matseðill fyrir næstu viku skal fólk hann fram yfir þann sem er í sjónhorninu.

 

  • Matseðill vikuna 13. – 17. febrúar 2012
  • Mánudagur 13. feb.
  • Lambakjöt  m/lauk og Bernes / Pönnusteiktur Lax m/pasta
  • Aspassúpa
  • Þriðjudagur 14. feb.
  • Lasagnja m/hvítlauksbrauði / Rauðspretta í soja og rauðkáli
  • Sellerysúpa
  • Miðvikudagur 15. feb.
  • Svikinn héri m/bernes / Hunangssteiktur Steinbítur
  • Kakósúpa
  • Fimmtudagur 16. feb.
  • Bradwurst pylsur m/ chilisósu / Ofnbakaður silungur
  • Blaðlaukssúpa
  • Föstudagur 17. feb.
  • Ávaxtafylltur svínabógur / Karrýristuð Ýsa
  • Grjónagrautur
  • Ef pantaður er matur í heimsendingu þá vinsamlegast pantið fyrir kl. 10 á morgnana svo tryggja megi skjóta og góða afgreiðslu.
  • Verð á mat er kr. 1.200.- sé maturinn sendur eða sóttur í bökkum, en kr. 1.490.- sé hann snæddur á staðnum. Súpa brauð og salat er kr. 950.- snætt á staðnum.

Fleiri fréttir