Eyrugla heilsaði upp á heimafólk á Hjaltastöðum
Stór og myndaleg eyrugla beið hjónanna Önnu Jóhannesdóttur og Þórólfs Péturssonar á Hjaltastöðum í Skagafirði er þau komu heim úr jarðaför sl. laugardag. -Þetta flykki sat á hestasteininum sem er hér fast við húsvegginn en sennilega er uglan búin að vera hér viðloðandi í talsverðan tíma, segir Anna og telur hana þá hafa haldið sig í limgerðinu sem er meðfram heimkeyrslunni að bænum.
Eyruglur eru sjaldséðar á Íslandi en teljist til nýrra landnema og hafa verpt hér. Á Wikipedia segir að meðalstór ugla mælist 31–37 sm löng með 86–98 sm vænghaf þar sem kvenfuglinn er stærri og dekkri en karlfuglinn. Þær má þekkja frá branduglum á því að þær hafa stærri eyru og augu þeirra eru appelsínugul en gul í branduglum.
Heimkynni eyrugla eru skógarjaðrar nálægt opnu svæði og gera þær sér hreiður í trjám, oft barrtrjám og nota gömul hreiður frá öðrum fuglum eins og krákum og hröfnum. Vanalega eru eggin 4 - 6 og útungunartími er 25 - 30 dagar.
Eyruglur veiða á opnum svæðum að nóttu til en fæða þeirra er aðallega nagdýr, lítil spendýr og fuglar.