Falinn kvikmyndafjársjóður á Íslandi
Nú er hægt að tala þátt í Ævintýralegri GPS fjársjóðsleit í fyrsta sinn á Ísland en leikurinn tengist íslenskum og erlendum kvikmyndum, teknum upp á Íslandi. Um er að ræða svokallað „Geocache“ en það er ratleikur sem styðst við GPS tækni. Hægt verður að finna fjársjóð við Þingeyrarkirkju í Austur-Húnavatnssýslu sem tengist kvikmyndinni Agnes og einnig á slóðum Bíódaga á Höfða í Skagafirði.
Geocache er alþjóðleg „fjársjóðsleit“ eða ratleikur sem styðst við GPS-tækni. Leikurinn gengur út á að hver sem er getur falið „fjársjóðsbox“ (e. cache) hvar sem er í heiminum. Nákvæm staðsetning (GPS-hnit) boxins er skráð á síðuna www.geocaching.com og notendur síðunnar geta þá hafið leitina.
„Boxunum er þannig komið fyrir að vegfarendur finni þau helst ekki nema þeir séu að leika leikinn og þá sérstaklega að leita að þeim,“ segir í frétt á Kvikmyndir.is. Í dag eru margir með snjallsíma með staðsetningartæki og er hægt að fá forrit í símana sem færir Geocache í símann, því er ekki þörf á hefðbundnu GPS tæki til að taka þátt í leitinni.
Heilbrigt fjölskylduáhugamál sem hvetur til útivistar
Eysteinn Guðni Guðnason fékk hugmyndina að verkefninu hér á landi, en Geocaching er alþjóðlegur leikur, og eru Geocache fjársjóðsbox falin í yfir 100 löndum í öllum sjö heimsálfunum. Hann segir í samtali við Kvikmyndir.is að notendur síðunnar www.geocaching.com séu nú yfir fimm milljónir og fari ört fjölgandi, enda sé Geocache einn þeirra samskiptaleikja sem sé í hvað mestum vexti um þessar mundir.
„Geocache er heilbrigt fjölskylduáhugamál sem hvetur til útivistar og dæmi eru um að fólk ferðist heimshluta á milli í fjársjóðsleit: Einnig er samfélag fjársjóðsleitenda á www.geocaching.com sterkt og tilvalin leið til að kynnast fólki með lík áhugamál,“ segir Eysteinn Guðni.
Í földu fjársjóðsboxunum er að finna bók þar sem finnendur skrá nafn sitt og skrifa síðan skilaboð til annarra finnenda. Þar eru gjarnan upplýsingar um staðsetninguna, s.s. ef hún er söguleg eða þekkt fyrir eitthvað sérstakt. Ein af reglum leiksins er einnig að finnendur skrifi um reynslu sína á síðuna www.geocaching.com.
Einnig eru yfirleitt einhverjir minjagripir í boxunum sem finnendur mega taka með sér en reglan er sú að sá sem tekur hlut úr boxi verður að setja annan í staðinn, sem hefur sama eða meira virði. Á Íslandi leynast nú yfir 300 fjársjóðsbox og þeim fjölgar stöðugt.
Menningarráð Norðurlands vestra styrkti verkefnið
Í vetur hefur Eysteinn Guðni, í samstarfi við Aura - Menningarstjórnun og ráðgjöf, unnið að fjármögnun fyrir verkefnið. Viðtökur voru góðar og fékk verkefnið styrki frá fjórummenningarsjóðum; Menningarsjóði Norðurlandi vestra, - Vestfjarða, - Austfjarða og Hafnarfjarðar.
Samkvæmt Kvikmyndir.is var búið að undirbúa boxin í maí og lagði Eysteinn Guðni þá af stað til að fela boxin. Með honum fór Davíð Þór Þorsteinsson aðstoðarmaður. Hringurinn var farinn rangsælis (fyrst austur) og var því fyrsta boxið sem var falið á Drangshlíð þar sem Hrafninn flýgur var meðal annars tekin upp. Þaðan var haldið á Austfirði, svo Norðurland, Vestfirði og endað á Reykjanesskaganum. Búið var að fá leyfi fyrir boxunum á þeim stöðum sem voru á einkalóð og voru allir mjög samstarfsfúsir.
Búið er að setja upp 14 box og eitt til viðbótar bætist við í ágúst. Boxin og staðsetning þeirra, eru mjög fjölbreytt. Að sumum er erfitt að komast, og erfitt að finna þau, sum eru stór og önnur smá. Sum hafa þrautir, sum eru í þéttbýli og önnur í stórbrotinni náttúru.
„Boxið fyrir Nóa albinóa er falið á Þingeyri. Fyrst þarf maður að fara í kaffihúsið Simbahöllina sem margir þekkja sem bókabúðina í Nóa albínóa. Þar er rubik’s cube sem maður þarf að leysa til að fá hnitin að boxinu, en glöggir lesendur muna eftir að Nói leysti einmitt rubik’s cube í myndinni,“ segir Eysteinn Guðni.
Í Hafnarfirði er svokallað „multi-cache“, en þar er að finna vísbendingar á frægum tökustöðum sem leiða mann loks að boxinu. Þetta eru Astrópía, Ævintýri Pappírs Pésa,Hrafnar, sóleyjar og myrra, Mávahlátur og svo loka boxið við tökustað á Blóðböndum.
Ísland hefur verið staðgengill fyrir marga mismunandi staði, Japan í Flags of Our Fathers, Tíbet í Batman Begins og núna nýjast upphaf mannkynssögunnar í Prometheus. Í raunveruleikanum eru þetta Sandvík, Svínafellsjökull og Dettifoss, en það er box falið á öllum þessum stöðum. Auk þess er box falið við Jökulsárlón þar sem Die Another Day var tekin upp, en í henni var ekki verið að ljúga til um staðsetningu, því Bond fer til Íslands í þeirri mynd.”
Listi yfir fjarsjóðina:
Suðurland
- Hrafninn flýgur - regular - Drangshlíð (við þjóðveginn)
- Batman Begins - regular - Svínafellsjökull (30 mínútna labb frá þjóðveginum)
- Die Another Day - regular – Jökulsárlón (við þjóðveginn)
Austfirðir
- Hafið - puzzle - Á Neskaupsstað
- Kaldaljós - regular - 5 mínútna akstur frá Seyðisfirði
- Secret Life of Walter Mitty - Væntanleg í ágúst (Seyðisfirði)
Norðurland
- Prometheus - regular – Dettifoss
- Bíódagar - regular - Höfði í Skagafirði
- Rokland - regular - Grettisbæli (Drangey)
- Agnes - puzzle - Þingeyrarkirkja (5 mínútna akstur frá þjóðveginum)
Vestfirðir
- Börn náttúrunnar - regular - Staðarkirkja í Aðalvík (Hornströndum)
- Nói albínói - puzzle – Þingeyri
- Á annan veg - regluar - 10 mínútna akstur frá Patreksfirði
Suð-Vesturland
- Astrópía - Ævintýri Pappírs Pésa - Mávahlátur – Hrafnar, sóleyjar og myrra - Blóðbönd - multi - Miðbæ Hafnarfjarðar
- Flags of Our Fathers - regular - Sandvík (30 mínútna labb)
Heimild: Kvikmyndir.is