Félag Forstöðumanna Sjúkrahúsa 50 ára

Í ár fagnar Félag forstöðumanna sjúkrahúsa á Íslandi 50 ára afmæli og af því tilefni var efnt til afmælisfagnaðar að kveldi föstudagsins 23.  nóvember sl.  með núverandi og eldri félögum. Fyrr um daginn var aðalfundur félagsins haldinn á Sólvangi í Hafnarfirði þar sem kjörin var ný stjórn. Fráfarandi formaður, Árni Sverrisson, forstjóri Sólvangs gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. 

Nýr formaður var kjörinn Guðjón S. Brjánsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.  Aðrir í stjórn eru Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands,  Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga  og Sigríður Snæbjörnsdóttir,  forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Fleiri fréttir