Félagsmót Stíganda 2012

Félagsmót Stíganda árið 2012 verður haldið að Vindheimamelum sunnudaginn 15. júlí og hefst kl. 13:00. „Félagar takið daginn frá, mætum hress,“ segir í frétttilkynningu frá Nefndinni.

Keppt verður í A- og B- flokki barna og unglingaflokki,  eftir reglum um sérstaka forkeppni tveir til þrír inná í einu.

Skráningar skulu hafa borist fyrir kl. 19:00 þann 14. júlí nk. á netfangið fritz@mi.is. Skráningargjöld eru kr. 2.000. Frítt fyrir börn og unglinga. Greitt skal við skráningu inn á reikning félagsins sem er 0161-26-269 kt: 620269-6979 og skal senda kvittun á fritz@mi.is .

Nánari upplýsingar væntanlegar inn á heimasíðu félagsins: http://www.123.is/stigandafelagar

 

Fleiri fréttir