Félagsvist í safnaðarheimilinu á Sauðárkróki
Munið spilin í safnaðarheimilinu á Sauðárkróki sunnudaginn 19. febrúar kl. 15:15. Verðlaun og kaffiveitingar.
Aðgangseyrir er kr. 1500 og rennur til söfnunar fyrir bættu aðgengi í safnaðarheimilinu. Kort ekki tekin.
Feykir hvetur alla til að mæta og styðja gott málefni. Allir velkomnir.
Fleiri fréttir
-
Felix Bergs er spenntur fyrir Skúnaskralli
Skúnaskrallið – Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra – rúllar áfram og á morgun kemur góður gestur í Skagafjörðinn. Felix Bergsson rithöfundur með meiru mætir þá í grunnskólana þrjá í Varmahlíð, Sauðárkróki og á Hofsósi. Hann ætlar að lesa upp úr nýju bókinni sinni, Leynifélag í lífsháska, syngja með krökkunum og spjalla um daginn og veginn. Feykir sendi honum nokkrar spurningar í morgun og hann svaraði um hæl.Meira -
Oddvitinn bregður á leik
feykir.is Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 27.10.2026 kl. 09.00 hinrik@feykir.isSigurður Líndal Þórisson oddviti sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra kann ýmislegt fyrir sér. Margir vita að Sigurður er leiklistarmenntaður og hefur verið virkur leikstjóri um árabil og sett upp fjölmörg leikrit, aðallega í Húnaþingum. Ekki hefur Sigurður verið áberandi á hvíta tjaldinu eða skjánum en nú ber svo við að hann hefur birtst í sjónvarpsþáttaröðinni; Fleiri Pabbahelgar eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur sem sýnd er á Rúv þessar vikurnar. Sigurður er þarna reffilegur í hlutverki afleysingarkennara.Meira -
Ríflega 100 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 27.10.2026 kl. 08.33 oli@feykir.isUppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Fram kemur í frétt á vef SSNV að alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur. Alls reyndust 57 umsóknir vera vegna menningar- og samfélagsverkefna en að öðru leyti skiptust þar þannig að tíu umsóknir voru vegna stofn- og rekstrarstyrkja á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.Meira -
Pere og Fede yfirgefa lið Kormáks Hvatar
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 26.10.2026 kl. 15.32 oli@feykir.isFótboltavertíðinni á Íslandi lauk nú um liðna helgi en þá var síðasta umferðin spiluð í Bestu deild karla. Þar gerðust þau undur að lið KA féll niður í Lengjudeildina en vinir þeirra í Þór héldu sæti sínu. Það er sjaldan ró og friður í fótboltanum og vertíðinni ekki fyrr lokið en farið er að huga að næsta tímabili. Á Aðdáendasíðu Kormáks Hvatar má sjá að Húnvetningar verða að horfa á eftir þeim Pere Belmonte og Fede Russo yfir í lið Hauka í Hafnarfirði sem tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni nú í haust.Meira -
Vilja að slökkvibifreiðar verði undanþegnar kílómetragjaldi
Sveitarstjórn Skagafjarðar óskar eftir því að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi eins og björgunarbifreiðar. Í frétt á mbl.is segir að þetta komi fram í umsögn sveitarfélagsins um drög fjármála- og efnahagsráðuneytisins að breytingum á lögum um kílómetragjald.Meira
