Felix Bergs er spenntur fyrir Skúnaskralli

Felix Bergsson rifthöfundur, fjölmiðlamaður, tónlistarmaður, leikari o.s.frv. MYND AÐSEND
Felix Bergsson rifthöfundur, fjölmiðlamaður, tónlistarmaður, leikari o.s.frv. MYND AÐSEND

Skúnaskrallið – Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra – rúllar áfram og á morgun kemur góður gestur í Skagafjörðinn. Felix Bergsson rithöfundur með meiru mætir þá í grunnskólana þrjá í Varmahlíð, Sauðárkróki og á Hofsósi. Hann ætlar að lesa upp úr nýju bókinni sinni, Leynifélag í lífsháska, syngja með krökkunum og spjalla um daginn og veginn. Feykir sendi honum nokkrar spurningar í morgun og hann svaraði um hæl.

Hvað geturðu sagt okkur um Leynifélag í lífsháska? „Í þessari nýju bók er ég að fjalla enn og aftur um tvíburana Freyju og Frikka sem lenda í miklum ævintýrum á ferðum sínum um heiminn. Að þessu sinni reynist hættan vera heima fyrir þegar sprengjuvargur fer á stjá í höfuðborginni og veldur mikilli hættu. Löggan er alveg að gefast upp að rannsaka málið en þá taka krakkarnir til sinna ráða. Í bókinni er líka ferðalag alla leið til Norður Afríku og þar gerast líka dularfullir atburðir. Sagan er því eiginlega á tveimur plönum. Ég vil skrifa ævintýrabækur eins og ég las sjálfur sem barn og unglingur, bækur þar sem krakkarnir þurfa að leysa dularfull mál. Ég las Frank og Jóa, Fimm bækurnar og Dularfullu bækurnar og drakk í mig spennusögur með skemmtilegum krökkum á fjarlægum stöðum. Þetta er ný bók um Freyju og Frikka og sú fimmta í röðinni. Hinar hafa komið á Storytel og krakkarnir virðast þekkja þær mjög vel nú orðið.“

Hlakkar þú til að heimsækja skólana? „Ójá ég hlakka sko til! Það gefur mér mikið að koma í skólana og hitta krakkana á þeirra heimavelli. Við syngjum saman og ég les úr bókunum mínum. Svo svara ég öllum þeirra spurningum sem eru yfirleitt mjög skemmtilegar og vekja skemmtilegar umræður. Við eigum svo frábæra krakka og þeirra er framtíðin! Það er líka svo gaman að sjá Skúnaskrallið blómstra svona og færa krökkum á landsbyggðinni menningu sem þau eiga svo sannarlega rétt á að njóta líka.“

Eru krakkarnir móttækilegir fyrir góðri sögu? „Já, það er ekki spurning. Þau eru mjög móttækileg en að sama skapi gefast þau fljótt upp ef sagan er ekki góð. Þau eru líka ótrúlega fljót að leysa gátur áður en rithöfundurinn vill upplýsa plottið. Það getur verið mjög flókið þegar ég er að lesa í skólum og þau virðast hafa fattað plottið strax!“

Hvað gerir þú í svona heimsóknum? „Ég byrja á að segja þeim aðeins af mér og reyna að tengja mig við þau. Sýni þeim myndir úr sjónvarpi og leikritum og af fjölskyldunni minni. Svo tala ég um tenginguna við Gunna og hvernig við erum báðir að skrifa fyrir börn. Svo les ég úr nýju bókinni, sýni þeim myndir eftir Kára Gunnarsson úr bókinni og svara spurningum í kjölfarið. Í lokin set ég svo söngtexta upp á skjáinn og syng með þeim 2-3 lög. Þá verður mikið stuð.“

Varst þú duglegur að lesa sem krakki? „Já, eins og ég sagði áðan var ég mikill bókamaður sem barn og las allt sem ég komst yfir. Ég las fyrst og fremst ævintýrabækur um klára krakka en líka bækur eftir höfunda eins og Guðrúnu Helgadóttur og Astrid Lindgren. Elskaði t.d. Bróður minn Ljónshjarta og Jón Odd og Jón Bjarna. Upp úr 12 ára datt ég svo í sápuóperur eins og Ísfólkið og Bob Moran. Las allt sem ég komst yfir.“

Feykir þakkar Felix fyrir spjallið.

Fleiri fréttir