Northern Mics fór fram í Gránu
Sunnudaginn 25. október fór fyrsti opni sviðsviðburðurinn „Northern Mics“ fram á Gránu Bistro á Sauðárkróki. Aline Garcia hafði frumkvæði að þessum mánaðarlega viðburði, með stuðningi Freyju Rutar Emilsdóttur í gegnum menningarfélagið Gránu. Verkefnið spratt af löngun til að skapa vettvang þar sem fólk getur deilt fjölbreyttri listrænni tjáningu, þvert á menningarleg og tungumálaleg landamæri, og stuðlað að sterkari tengslum innan samfélagsins á Sauðárkróki.
Á þessum fyrsta viðburði fengu gestir að njóta frumsaminnar tónlistar frá Garmune (Aline Garcia), þriggja tónlistaratriða í flutningi Stefáns Óskars Hólmarssonar og nokkurra djassverka í flutningi gestalistamannanna Joaquín de la Costa og Tristan Michael Willems.
Auk þess setti Sara Jóna Emilía upp myndlistarsýningu og voru verk hennar til sýnis víðs vegar um húsnæðið. Ef þú misstir af sýningunni er enn tækifæri til að sjá verkin hennar, en þau verða til sýnis á Gránu alla vikuna.
Á þessum mánaðarlegu viðburðum fær fjölbreyttur hópur listafólks tækifæri til að sýna hæfileika sína. Þar má nefna myndlistarfólk á borð við ljósmyndara, málara og handverksfólk, auk tónlistarfólks, söngvaskálda, hljóðfæraleikara, ljóðskálda og rithöfunda.
Næsti viðburður verður haldinn sunnudaginn 22. nóvember kl. 17:00 á Gránu. Aðgangur er ókeypis. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt er þér velkomið að senda skilaboð á opinberan aðgang Northern Mics.
/Fréttatilkynning

