Fermingarmeikóver Fröken Fabjúlöss og föruneytis!
Eins og svo oft áður ákvað Frökenin að smala saman mannskap til að skapa smá fermingarstemmningu þar sem páskarnir með tilheyrandi fermingarbörnum og veislum eru á næsta leyti. Eins og áður var tískudrottningin Anna Sigga fengin til að skaffa flíkur úr fatadeild Skagfirðingabúðar og Gunnhildur Gísla ljósmyndapæja fengin til að fanga augnablikið á sinn stórkostlega hátt, og voru það þær Guðrún Vigdís og Þórdís á Capello sem sáu um hárið á meðan Fröken Fabjúlöss sjálf sá um förðunina.
Yfirleitt hefur Frökenin einbeitt sér að kvenkyninu, enda yfirleitt meira „stúss“ í kringum þær, en í þetta skipti ákvað Frk. Fab að færa út kvíarnar og bæta fermingardreng í jöfnuna. Módelin og verðandi fermingarbörn voru ekki af verri endanum: Hera Sigrún Ásbjörnsdóttir og Andri Snær Ásmundsson.
Förðun:
Ekki hefur það tíðkast að farða fermingardrengi, og ákvað Frökenin að vera ekkert að hætta sér inn á þær brautir, enda engin ástæða til þar sem Andri er með einstaklega hreina og flotta húð.
Við litaval förðunarinnar á fermingarstúlkunni ákvað Frökenin að halla sér svolítið í fjólubláa átt án þess að sá litur yrði yfirgnæfandi í förðuninni, enda er fjólublár einstaklega inn í dag og í miklu uppáhaldi hjá Fabjúlöss. Lykilatriði í fermingarförðun er hið svokallaða „less is more“- draga fram náttúrulega fegurð og undirstrika það sem fyrir er! Löng hefð er fyrir ljósmyndun á fermingardaginn og þurfa þær myndir að standast tímans tönn, og gott er að hafa það á bak við eyrað.
Fötin:
Anna Sigga valdi á Heru mjög fallegan hvítan kjól, með svartri blúndu um mittið en hvíti liturinn er alltaf mjög vinsæll hjá stelpunum. Kjólarnir þetta sísonið eru flestir í hinu svokallaða skater sniði þar sem toppurinn er þröngur að ofan og pilsið hringskorið. Síðan eru líka blúndur alltaf vinsælar fyrir fermingar og er Anna Sigga með kjóla til dæmis Í kóralbleiku sem er mjög vinsæll litur núna. Hera er í skóm með fylltum hæl sem eru mjög þægilegir, en ballerínuskór eru einnig vinsæll kostur. Svo eru einhverjar sem ætla að vera í Converse skóm á fermingardaginn og fást þeir einnig í öllum regnbogans litum. Andri er í blárri skyrtu með hvítum doppum og með bláa og rauða prjóna slaufu, en prjónaðar slaufur og prjónuð bindi hafa verið nokkuð vinsæl í ár. Slaufurnar eru vinsælli á meðal fermingardrengja og er hægt að fá þær í allskonar litaútgáfum. Svo valdi Anna Sigga dökkbláar gallabuxur frá Blend og geðveikislega flotta rauða leðurskó frá SIX MIX. Auðvitað eru til lika Converse skór á strákana þar sem sirka 90 prósent af strákunum fara ekki í hefðbundna spariskó heldur fara þeir beint í Converse skóna.
Hárið:
Það er svosem löngu vitað mál að tískan fer í hringi, og er hártískan engin undantekning. Í hártísku karlmanna þessa dagana erum við komin aftur til stríðsáranna. Andri er vel rakaður í hliðunum með síðara ofaná og allt greitt aftur í hermannastíl.
Fermingargreiðslur stúlknanna í ár eru svipaðar og í fyrra, einfaldar og smart. Liðir og bylgjur eru vinsælar poppaðar upp með fléttum eða snúningum. Hárið á Heru var allt krullað með keilujárni, toppurinn tekin upp og waterfall flétta fléttuð í hálfhring frá annarri hliðinni að toppi og svo puntað með smá skrauti.
Hér að neðan má svo finna prósessinn í myndum: