FeykirTV á blúshátíð

Blúshátíð Reykjavíkur fór fram í Dymbilviku á Hilton Nordica Hotel og var mikið af flottum tónlistarmönnum sem komu fram á hátíðinni í ár eins og alltaf. Ber þar helst að nefna John Primer, Michael Burks, The Vintage Caravan, Blúsmenn Andreu, Tregasveitina og síðast en ekki síst Contalgen Funeral.

Contalgen Funeral spilaði þó ekki bara á Hilton því þau komu fram víðsvegar um Reykjavík á meðan hátíðinni stóð. En staðir eins og Café Haíti, Háskólatorg og Kolaportið urðu fyrir valinu ásamt fleirum. Telja meðlimir sveitarinnar að þau hafi komið átta sinnum fram í þessari ferð.

Næst á dagskrá hjá sveitinni eru tónleikar á Mælifell þann 27. apríl nk. þar sem Skagfirðingum gefst tækifæri á að berja hljómsveitina augum en eins og menn muna slógu þau rækilega í gegn á Skagfirðingablóti á dögunum. Tónleikarnir verða auglýstir síðar.

FeykirTV var á Blúshátíð og fangaði stemninguna á nokkrum af þeim stöðum sem hljómsveitin kom fram á.

http://www.youtube.com/watch?v=KFrimHnXS6c

Fleiri fréttir