Fíasól er haustleikrit Leikfélags Sauðárkróks

Leikfélag Sauðárkróks er tekið til starfa eftir sumarið og vinnur nú að haustleikriti leikfélagsins en þetta árið varð barnaleikritið Fíasól fyrir valinu, eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.

„Þetta leikrit var m.a fyrir valinu því það höfðar til breiðs aldurhóps, það er einnig skemmtilegt með grípandi tónlist og ekki skemmir að góður boðskapur leynist í því,“ segir Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir formaður LS.

Að sögn Sigurlaugar er búið að manna öll hlutverk og er leikhópurinn blandaður af nýjum leikurum innan um reynslubolta.

„Einnig er góður hópur bak við tjöldin og saman myndast góð heild sem verður til þess að allt gengur þetta upp innan sviðs sem utan. Leikstjórar að þessu sinni eru heimafólkið Páll Friðriksson og Guðný Axelsdóttir en þetta er frumraun þeirra í að leikstýra en eru bæði miklir reynsluboltar hjá LS,“ segir Sigurlaug.

Æfingar eru komnar á gott skrið en Fíasól verður frumsýnt 3. nóvember næstkomandi.

Fíasól og félagar hlakka til að sjá ykkur í leikhúsinu,“ segir Sigurlaug í lokin.

Fleiri fréttir