Fíasól – seinustu sýningar

Einungis örfáar sýningar eru eftir af barnaleikriti Leikfélags Sauðárkróks, Fíusól. Í kvöld er 7. sýning, á föstudaginn 8. sýning (örfáir miðar lausir) og allra seinasta sýning næstkomandi sunnudag, 18. nóvember kl. 17.

Miðasala er í Bifröst virka daga milli klukkan 16-18 og við innganginn á sunnudaginn. Miðasölusími er 849 9434.

LS minnir á fyrir foreldrafélag Árskóla að miðinn er niðurgreiddur af félaginu fyrir nemendur í 1.-3. bekk og eins hjá foreldrafélagi Varmahlíðarskóla fyrir 1.-6. bekk.

Allra seinustu sýningar:

  • 7. sýning, miðvikudag, 14. nóv. kl. 18
  • 8. sýning, föstudag, 16. nóv. kl. 18 (örfáir miðar lausir)
  • Allra seinasta sýning, sunnudag, 18. nóv. kl. 17

Nánar um leikritið má sjá á heimasíðu Leikfélags Sauðárkróks.

 

Fleiri fréttir