Fimleikahringurinn heimsækir Skagafjörð í þriðja sinn
Mánudaginn 30. júlí munu Evrópumeistararnir í hópfimleikum heimsækja Skagafjörð, sýna og kenna fimleika. Heimsóknin er liður í Fimleikahringnum sem er samstarfsverkefni Íþróttafélagsins Gerplu, UMFÍ og Olís. Tilgangur Fimleikahringsins er að kynna hópfimleika fyrir landsbyggðinni og vekja athygli á Ungmennalandsmóti UMFÍ um Verslunarmannahelgina.
Sýningin verður í íþróttahúsinu Sauðárkróki og hefst klukkan 16:00. Að sýningu lokinni gefst krökkum og unglingum kostur á að hljóta leiðsögn frá Evrópumeisturunum í fimleikum á um klukkustundarlöngu fimleikanámskeiði. Þátttaka í fimleikanámskeiðinu kostar 1.000 kr.
Hér má finna tengil á fésbókarsíðu Fimleikahringsins en þar má finna myndir frá fyrri ferðum hópsins um landið.