Fimm tilboð bárust í flotbryggju

Tilboð í flotbryggjur fyrir Sauðárkrókshöfn voru opnuð þann 7. febrúar síðastliðinn og bárust tilboð frá fimm aðilum, auk þriggja frávikstilboða. Samkvæmt heimasíðu Skagafjarðarhafna hljóðar kostnaðaráætlunin upp á 80.841.000 krónur og er afhending áætluð 15. júní 2013.

Tilboð bárust frá 5 aðilum og voru eftirfarandi:

  • Króli ehf.             75.531.486,00 krónur
  • A-Marine ehf.     95.955.000,00 krónur
  • Þotan ehf.           85.218.000,00 krónur
  • Skipavík               82.596.800,00 krónur
  • K-Tak ehf.            79.540.000,00 krónur

Þá bárust þrjú frávikstilboð:

  • Króli ehf.             72.513.586,00 krónur
  • A-Marine ehf.     75.410.160,00 krónur
  • K-Tak ehf.           78.380.000,00 krónur

Engar athugasemdir voru gerðar eftir opnun tilboðanna og er nú verið að fara yfir tilboðin og í framhaldi af því verður væntanlega gengið til samninga við þann aðila sem er með hagstæðasta tilboðið, segir á heimasíðu Skagafjarðarhafna.

 

Fleiri fréttir