Fimmti sigurinn í Lengjubikarnum
Tindastóll hefur nú unnið alla leiki sína í Lengjubikarnum þegar fimm umferðum er lokið en í kvöld fengu Stólarnir lið Breiðabliks í heimsókn. Blikarnir voru sprækir og gáfu Stólunum ekkert eftir og voru í séns fram á síðustu mínútu en á endanum voru heimamenn sterkari og sigruðu með 10 stiga mun, 87-77.
Blikarnir byruðu leikinn betur og komust í 8-16 um miðjan fyrsta leikhluta en Hreinsi jafnaði leikinn 21-21 og Ingvi Rafn kom Stólunum yfir rétt fyrir lok leikhlutans, staðan 23-21. Baráttan hélt áfram í öðrum leikhluta og Blikarnir gáfu ekkert eftir, jöfnuðu 27-27, en þá kom góður kafli hjá heimamönnum sem gerðu 13 stig gegn þremur og voru yfir 40-30 þegar ein og hálf mínúta var til leikhlés. Blikarnir minnkuðu muninn og staðan 41-36 í hálfleik.
Hraunar Karl, sem átti hörkuleik fyrir Blika, setti niður 3ja stiga körfu í byrjun þriðja leikhluta en George Valentine gerði næstu 6 stig leiksins fyrir Tindastól sem komust 11 stigum yfir um miðjan leikhlutann, 56-45, eftir troðslu frá Valentina og aftur skömmu síðar, 60-49, eftir 3ja stiga körfu frá Ingva Rafni. Það munaði 8 stigum að loknum þriðja leikhluta, staðan 64-56, en gestirnir minnkuðu muninn í fjögur stig strax í upphafi fjórða leikhluta. Hreinsi svaraði fyrir Stólana með fimm stigum í röð en Blikarnir gáfust ekki upp og hleyptu Tindastólsmönnum ekki langt frá sér og munurinn yfirleitt þetta 4 til 7 stig fram á síðustu mínútu en Drew Gibson gerði 3 síðustu stigin af vítalínunni. Lokatölur 87-77.
Stig Tindastóls: Valentine 24, Helgi Rafn 13, Gibson 13, Hreinsi 11, Þröstur Leó 10, Helgi Freyr 8, Ingvi Rafn 5, Svabbi 2 og Sigtryggur Arnar 1.