Fisk Seafood gefur ungum körfuboltaiðkenndum peysur

Frá uppskeruhátíðinni.
Frá uppskeruhátíðinni.

Mánudaginn 31. maí fór fram uppskeruhátíð körfuboltaiðkenda Tindastóls í fyrsta til sjötta Bekk og föstudaginn 4. júní fór fram uppskeruhátíð iðkenda í sjöunda til tíunda bekk.
Veittar voru þátttökuviðurkenningar ásamt því að Fisk Seafood gaf öllum iðkendum peysur merktar Tindstól frá Jako.

Það voru þær Guðrún Sighvatsdóttir, Ingileif Oddsdóttir og Stefanía Inga Sigurðardóttir sem afhentu peysurnar fyrir hönd Fisk Seafood.


Uppskeruhátíðunum lauk síðan með allsherjar pizzuveislu.


 

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir