Fiskroð frá Sauðárkróki með alþjóðleg verðlaun í Hong Kong

Sjávarleður á Sauðárkróki fékk alþjóðleg verðlaun á stórri leðursýningu í Hong Kong sem haldin var í dymbilvikunni. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum og fékk Sjávarleður verðlaunin „Besta lúxus leðrið“ fyrir vor/sumar línu fyrirtækisins 2014. Í umsögn dómnefndar segir að fiskleðrið frá Sjávarleðri sé „vandað og nýstárlegt lúxus leður“.

Gunnsteinn við verðlaunaafhendinguna.

„Þetta er mjög mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið“ segir Gunnsteinn Björnsson framkvæmdastjóri Sjávarleðurs, „ en segja má að þetta séu ámóta verðlaun fyrir leðurgeirann og Baftaverðlaunin eða Óskarinn eru fyrir kvikmyndabransann.“

Besta lúxus leðrið.

APLF í Hong Kong er stærsta leðursýningin í Asíu, en reiknað var með rúmlega 1200 sýnendum að þessu sinni. Í fyrra komu 19 þúsund gestir á þremur dögum frá 91 landi, sem er gífurlegur fjöldi þegar haft er í huga að þetta er nær eingöngu fagfólk: framleiðendur, umboðsfyrirtæki, söluskrifstofur, merkjavörufyrirtæki o.s.frv.

Fleiri fréttir