Fjallvegir ófærir
Áætlunarferðum sérleyfisbifreiða Sterna sem áttu að fara frá Snæfellsnesi til Reykjavíkur og frá Reykjavík til Akureyrar, Búðardals og Hólmavíkur í morgun var frestað. Einnig var ferðinni sem átti að fara frá Akureyri til Reykjavíkur í morgun frestað. Athuga á kl 11:30 hvort farið verður í ofangreindar ferðir kl. 12:00.
Samkvæmt heimasíðu vegagerðarinnar er Vatnsskarðið ófært og Holtavörðuheiðin þungfær svo fólk ætti ekki að huga á langferðir í dag.